Icelandair mun þann 25. mars flytja þjónustu sína á Heathrow flugvellinum í London, frá flugstöðvarbyggingu 1 (Terminal 1) yfir í hina nýbyggðu flugstöð sem kennd er við Bretadrottningu, Terminal 2 – The Queen‘s Terminal. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Byggingin var tekin í notkun í júlí í fyrra, og í vetur hafa 25 flugfélög verið að flytja sig um set og hefja starfsemi í nýju byggingunni. Þar á meðal eru mörg af þekktustu flugfélögum heims, eins og SAS, Lufthansa, Singapore Airlines, Turkish Airline og United Airlines.

Nýbyggingin Terminal 2 er mjög svipuð og Terminal 5, þar sem British Airways hefur aðsetur og margir kannast við. Í Terminal 2 er hátt til lofts og vítt til veggja og tugir verslana og veitingastaða.

„Það er ánægju- og tilhlökkunarefni að geta boðið viðskiptavinum okkar þessa frábæru nýju aðstöðu á Heathrow“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.

Icelandair flýgur tvisvar á dag, allt á árið, til London Heathrow. Fyrsta flugið sem nýtir The Queen‘s Terminal 2 verður að morgni 25. mars í vor.