TRU Flight Training Iceland, dótturfélag Icelandair, hefur skrifað undir samning um kaup á nýjum Boeing 737MAX flughermi af TRU Simulation + Training í Kanada.

Icelandair er fyrsta flugfélagið sem festir kaup á slíkum hermi, en Boeing flugvélaframleiðandinn er um þessar mundir sjálfur að gangsetja fyrstu fjóra flughermana í heiminum fyrir Boeing 737MAX.

Stefnt er að því að taka flugherminn í notkun sumarið 2018 í kjölfarið á því að fyrstu vélar af gerðinni Boeing 737MAX hefja sig til flugs í áætlunarflugi Icelandair snemma á næsta ári.

Ný bygging reist yfir herminn

Ný bygging, áföst þjálfunarsetri félagsins í Hafnarfirði, verður reist yfir herminn. Flughermar eru notaðir við nýþjálfun og reglubundna þjálfun flugmanna.

Fyrir tveimur árum tók félagið í notkun Boeing 757-200 flughermi og fluttist þá stærstur hluti þjálfunar flugmanna Icelandair inn í landið.

Rekstur hermisins hefur reynst mjög vel og á síðasta ári var nýting hans 18 klukkustundir að meðaltali á sólarhring. Icelandair er stærsti notandinn, en erlend flugfélög svo sem FedEx, kaupa einnig þjálfun fyrir sína flugmenn í herminum.

Mikil eftirspurn eftir flughermiþjálfun

„Ákvörðunin um kaupin á 737MAX flughermi byggir einkum á hinum miklu vinsældum þessarar nýju flugvélagerðar en hún hefur selst hraðar en nokkur önnur vél í sögu Boeing,“ segir Guðmundur Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri TRU Flight Training Iceland.

„Um 3600 Boeing 737MAX hafa þegar verið seldar, til viðbótar við þær níu þúsund 737 vélar sem fyrir eru í heiminum, og ljóst að mikil spurn verður eftir flughermiþjálfun flugmanna þegar vélarnar koma á markað.

Stefnt er að því að öll þjálfun flugmanna sem fljúga hinum sextán 737MAX vélum sem Icelandair hefur pantað verði hér á landi, og hefjist skömmu eftir að fyrstu vélarnar koma frá og með sumrinu 2018.

Einnig mun hermirinn verða leigður út til þjálfunar flugmanna nokkurra þeirra fjölmörgu erlendu flugfélaga sem reka munu stóra flota MAX véla næstu áratugina.“

Dótturfélag Icelandair kaupir herminn

TRU Flight Training Iceland er dótturfélag Icelandair sem sér um rekstur á flughermum og öðrum þjálfunarbúnaði.

Flughermar eru nákvæmar eftirlíkingar af stjórnklefum viðkomandi flugvélagerðar, þeir líkja eftir flugeiginleikum og unnt er að kalla fram margháttaðar bilanir og óvæntar aðstæður sem og flug við breytileg veðurskilyrði til að reyna á þjálfun flugmanna.

„Icelandair mun nýta þessar tvær flugvélagerðir, Boeing 757 og Boeing 737MAX, í leiðakerfi sínu til næstu framtíðar, og því fylgir mikil hagkvæmni að vera með þjálfun flugmanna hér á sama staðnum“, segir Guðmundur Örn. Framkvæmdir við nýbygginguna í Hafnarfirði munu hefjast í vor.