Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 1,05% í dag og endaði í 1768,78 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 5,94% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 0,44% í viðskiptum sem hljóða upp á 375 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 30,85 krónum á hlut. Gengi bréfa HB Granda hækkaði þá einnig, eða um 0,16% en þó aðeins í rúmlega 12 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 32,25 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 2,99% í viðskiptum sem hljóða upp á milljarð króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 30,85 krónur. Gengi bréfa Haga lækkaði þá einnig, eða um 2,11% í viðskiptum sem hljóða upp á 338 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 44,05 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 2,9 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var tæplega 5,7 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1% í dag í 2,9 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 5,4 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 0,3 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 5,1 milljarða króna viðskiptum.