Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq á Íslandi lækkaði um 0,17% í 1,6 milljarða viðskiptum sem voru í kauphöllinni í dag, og fór hún niður í 1.945,37 stig.

Gengi bréfa Icelandair lækkaði mest í viðskiptum dagsins, eða um 2,32% í 124 milljón króna viðskiptum og fór gengi bréfa félagsins niður í 9,69 krónur. Það félag sem lækkaði næst mest í viðskiptum dagsins var Reitir en gengi bréfa félagsins lækkaði þó mjög lítið eða um 0,07% í 15 milljón króna viðskiptum og fór gengi bréfa félagsins niður í 75,95 krónur.

Ofangreindu félögin tvö voru þau einu sem lækkuðu í viðskiptum dagsins en gengi níu félaga haggaðist ekki.

Mestu viðskiptin voru með bréf Skeljungs, eða fyrir rúmlega 651 milljónir króna, og hækkaði gengi bréfa félagsins næst mest, eða um 2,38%, upp í 7,73 krónur. Mest hækkaði gengi bréfa Kviku, eða um 2,43%, í 109 milljóna viðskiptum og er gengi bréfa bankans nú 10,55 krónur.