Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Icelanda lækkaði um 0,98% í dag og stendur því nú í 1.796,07 stigum. Hún hefur hækkað um 5% frá áramótum. Heildarvelta á mörkuðum nam 4,2 milljörðum, þar af var velta á skuldabréfamarkaði talsverð eða 3,5 milljarðar en veltan á hlutabréfamarkaði nam einungis 778 milljónum króna.

Gengi bréfa Icelandair Group lækkaði mest eða um 3,27% í 159 milljón króna viðskiptum. Mest velta var með hlutabréf Reitis, en þar nam veltan 185,6 milljónum króna. Gengi bréfa Nýherja lækkaði um 3,21% í 35,6 milljón króna viðskiptum.

Vísitölur GAMMA

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 0,5% í dag í 4,1 milljarða viðskiptum. Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,8% í dag í 0,7 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,4% í dag í 2,6 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,6% í 0,3 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 2,3 milljarða viðskiptum. Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði lítillega í dag í 0,8 milljarða viðskiptum.