Gengi hlutabréfa Icelandair Group hefur lækkað um 1,73% í 226 milljóna króna viðskiptum í dag. Félagið tilkynnti í morgun að öllum flugferðum á morgun yrði aflýst, en það eru samtals 26 flug. Ástæðan er boðað verkfall og yfirvinnubann flugmanna félagsins.

Icelandair hafði áður tilkynnt að verkfall flugmann kynni að kosta félagið 1,5 til 1,7 milljarða króna.

Velta með hlutabréf annarra skráðra félaga í Kauphöll Íslands er óveruleg.