Gengi bréfa Icelandair hefur lækkað um 3,26% eða úr 14,42 krónum við lokun markaða í gær niður í 13,95 krónur hvert bréf þegar þetta er skrifað.

Þetta þýðir að markaðsvirði félagsins hefur lækkað um tæplega 2,3 milljarða frá því viðskipti hófust, en eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um hefur verkfall flugvirkja hjá félaginu haft þónokkur áhrif á farþega þess síðan aðgerðirnar hófust í gærmorgun.