Icelandair lækkaði um 4,05% í Kauphöllinni í dag í yfir 2 milljarða króna viðskiptum. Um tveir þriðju hlutar allrar veltu með hlutabréf í Kauphöllinni í dag voru með bréf Icelandair.

Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins má líkast til rekja lækkunina að miklu leyti til þess að bandarísk stjórnvöld vöruðu í gærkvöldi þegna sína við hryðjuverkahættu á ferðalögum erlendis og hvöttu bandaríska ríkisborgara til að vera varkárir á ferðalögum sínum. Ferðaviðvörunin nær til 24. febrúar næstkomandi.

Stærstu flugfélög heims hafa einnig lækkað í verði í dag. Delta Air Lines hefur lækkað um 3,87% og American Airlines um 4,2%. Þá hafa SAS og Lufthansa einnig lækkað.