Icelandair Group sendi í kvöld út leiðréttingu á ensku útgáfu hálfsársuppgjörs síns en félagið birti uppgjörið síðastliðinn föstudag. Í ensku útgáfunni stóð að tap félagsins eftir skatta hafi numið 161 milljarði króna (billion). Það hefur nú verið leiðrétt, en rétt er að tap félagsins nam 161 milljón króna (million).

Líkt og greint var frá síðasta föstudag var hagnaður samstæðunnar á fyrri hluta þessa árs 2,3 milljarðar króna fyrir skatta og fjármagnsliði, samanborið við tæpan 1,5 milljarða króna á sama tíma í fyrra.