Icelandair segist hafa lokið viðræðum við flesta kröfuhafa sína fyrir fyrirhugað hlutafjárútboð sitt í ágúst. Félagið sé einnig langt komið í viðræðum við Boeing um frekari bætur vegna kyrrsettningar 737 MAX vélanna sem og útfærslu láns með ríkisábyrgð í viðræðum við stjórnvöld, Íslandsbanka og Landsbankann.

Gangi eftir að ljúka samkomulagi við alla kröfuhafa stefnir félagið að því að birta skráningarlýsingu og fjárfestakynningu samhliða hlutafjárútboði í ágúst þar sem félagið stefnir að því að sækja sér um 30 milljarða króna í nýtt hlutafé.

Icelandair hafði stefnt að því að ljúka viðræðunum í þessri viku en ljóst er að það hefur dregist.

Félagið hefur í sumar gert nýja samninga við flugstéttir sem fela í sér breytingar á vinnufyrirkomulagi og lægra tímakaup sem það taldi lykilatriði í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins.

Tilkynning Icelandair í heild sinni:

Eins og áður hefur verið tilkynnt, er samkomulag við helstu hagaðila Icelandair Group forsenda þess að félagið geti hafið fyrirhugað hlutafjárútboð og lokið við fjárhagslega endurskipulagningu félagsins.

Félagið hefur nú þegar undirritað nýja langtímasamninga við stéttarfélög flugmanna, flugfreyja og flugþjóna og flugvirkja sem munu auka sveigjanleika og samkeppnishæfni félagsins til lengri tíma. Samningaviðræður við aðra hagaðila eru nú vel á veg komnar og hefur félagið nú undirritað samninga við flesta kröfuhafa og náð samkomulagi í meginatriðum við þá sem eftir eru. Félagið gerir ráð fyrir að þeir samningar verði undirritaðir í næstu viku. Samningarnir eru háðir því að félagið nái markmiðum sínum um öflun nýs hlutafjár og geri samning um lánalínu með ríkisábyrgð. Samningaviðræður við kröfuhafa hafa miðað að því að laga afborganir að væntu sjóðstreymi frá rekstri. Þessir samningar tryggja nauðsynlegan sveigjanleika til að geta byggt starfsemi félagsins upp hratt og örugglega á ný þegar markaðir opnast og eftirspurn fer að aukast.

Unnið hefur verið að útfærslu á láni með ríkisábyrgð með íslenskum stjórnvöldum, Íslandsbanka og Landsbankanum og eru viðræður langt komnar. Eins og fram hefur komið, verður lánafyrirgreiðsla stjórnvalda meðal annars háð því að félagið nái markmiðum sínum um öflun nýs hlutafjár. Þá eru samningaviðræður við Boeing vel á veg komnar en viðræðurnar snúast um frekari bætur vegna kyrrsetningar MAX vélanna og að breytingar verði gerðar á áætlun um framtíðarafhendingu MAX flugvéla.

Þegar allir samningar liggja fyrir mun félagið birta fjárfestakynningu með ítarlegum upplýsingum fyrir fjárfesta og þátttakendur í fyrirhuguðu hlutafjárútboði. Í kjölfarið verður skráningarlýsing birt en gert er ráð fyrir að hlutafjárútboði muni ljúka í ágúst. Upplýsingar um fjölda útgefinna hluta og gengi verða birtar um leið og ákvörðun stjórnar félagsins um þau atriði liggur fyrir. Nánar verður fjallað um horfur félagsins í fjárfestakynningu og skráningarlýsingu sem birtar verða fjárfestum í aðdraganda hlutafjárútboðsins.