Icelandair hefur lokið fjármögnun á tveimur Boeing 737 MAX 8 flugvélum í samstarfi við Itasca Re og þýska bankann NORD/LB. Heildarfjárhæð fjármögnunarinnar er um 67 milljónir Bandaríkjadala, eða um 9,6 milljarðar króna á gengi dagsins, að því er kemur fram í tilkynningu flugfélagsins.

Um er að ræða tryggingavarða fjármögnun en vélarnar tvær eru nú í fullri eigu Icelandair sem keypti þær fyrir handbært fé síðastliðið haust.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að tilkynna um þessa mikilvægu fjármögnun í samstarfi við NORD/LB og Itasca Re. Mikil samkeppni var um aðkomu að þessu verkefni. Það skilaði sér í mjög samkeppnishæfum kjörum og staðfestir jafnframt trú fjárfesta á virði og styrkleikum MAX vélanna og ekki síður trú þeirra á Icelandair og viðskiptalíkan félagsins,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.