Icelandair mun hefja flug frá Keflavík til Helsinki í Finnlandi allt árið um kring, samkvæmt upplýsingum finnska viðskiptablaðsins Kauppalehti.

Ekki náðist í Guðjón Arngrímsson, talsmann flugfélagsins, þegar Viðskiptiblaðið reyndi að ná tali af honum.

Því til viðbótar ætlar Icelandair að markaðssetja ráðstefnuferðir til Helsinki í ársbyrjun 2007, segir í fréttinni.

Markmið Icelandair er að fá fimm þúsund nýja viðskiptavini á ári frá Finnlandi. Einnig er stefnan að sækja nýja viðskiptavini til Eystrasaltslandanna og Rússlands.