Icelandair hefur samið við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) um nýjan kjarasamning. Samningurinn gildir til 30. september 2025. Hann er í samræmi við þau markmið sem lagt var upp með um að auka vinnuframlag og sveigjanleika verulega samkvæmt tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar í morgun.

„Við erum mjög ánægð með að langtímasamningur við flugmenn sé í höfn. Þetta er stórt skref til að tryggja samkeppnishæfni félagsins og veigamikill þáttur í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Gerðar voru verulegar breytingar á samningnum sem tryggja aukið vinnuframlag flugmanna og gefa félaginu aukinn sveigjanleika til þróunar á leiðakerfi Icelandair. Með þessu eru flugmenn að leggjast á árarnar með félaginu til framtíða.“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group í tilkynningu félagsins.

„Félag íslenskra atvinnuflugmanna gerði í nótt tímamótasamning við Icelandair Group. Flugmenn eru stoltir af því að hafa náð markmiðunum sem lagt var upp með sem eykur enn á samkeppnishæfni Icelandair. Samningurinn tryggir að félagið er vel í stakk búið að til að sækja fram á hvaða markaði sem er til langrar framtíðar og nýta þau tækifæri sem sannarlega munu skapast“ er haft eftir Jón Þór Þorvaldssyni, formanni FÍA.