Gengi hlutabréfa Icelandair Group hefur lækkað um 3,61% í Kauphallarviðskiptum dagsins. Velta með hlutabréf fyrirtækisins nemur ríflega 206 milljónum króna við skrif fréttarinnar.

Verð á hvern hlut fyrirtækisins er þá 33,4 krónur. Fimmtudaginn 28. apríl náði hlutabréfaverð fyrirtækisins sínum hæstu hæðum en þá var hvert bréf á 38,9 krónur. Síðan þá hefur verðið lækkað um meira en 14%.