Arnar Már Arnþórsson, sem nú gegnir stöðu sölu- og markaðsstjóra Icelandair í Hollandi, mun taka við stöðu sölustjóra Icelandair í Bandaríkjunum frá og með 1. febrúar 2008.

Arnar hóf störf hjá Icelandair árið 2002 sem verkefnastjóri á sölu og markaðssviði félagasins. Síðan tók hann við sem sölu og markaðstjóri Hertz bílaleigunnar á Íslandi árið 2004 og starfaði þar til ársins 2006, eða þar til hann tók við núverandi starfi sínu sem sölu- og markaðsstjóri Icelandair í Hollandi.

Arnar Már er 34 ára og og er með viðskiptafræðipróf frá Háskóla Íslands. Hann er kvæntur Helenu Guðrúnu Bjarnadóttur og eiga þau tvær dætur.