Icelandair hefur undirritað samning við lettneska flugfélagið airBaltic um sammerkt flug félaganna. Um er að ræða samstarfssamning sem felur í sér að bæði flugfélögin geta selt og gefið út flugmiða hvort hjá öðru.

Þannig geta viðskiptavinir Icelandair keypt einn farseðil frá Íslandi eða Bandaríkjunum til fjölda áfangastaða airBaltic í Eystrasaltsríkjunum og Austur Evrópu. Á móti, geta viðskiptavinir airBaltic keypt miða til Íslands og yfir hafið til fjölda áfangastaða Icelandair í Norður Ameríku.

„Með því að tengja leiðakerfi Icelandair við airBaltic bjóðum við viðskiptavinum okkar aukna valmöguleika þegar kemur að tengingum í Eystrasaltsríkjunum og Austur Evrópu. Á móti geta viðskiptavinir airBaltic nýtt sér mikilvægar tengingar til Íslands og yfir hafið til fjölda áfangastaða okkar í Norður Ameríku. Samstarfið styrkir Keflavíkurflugvöll sem tengimiðstöð og styður við fjölgun ferðamanna,” er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group, í fréttatilkynningu.

„Það er okkur sönn ánægja að gera samstarfssamning við öflugt félag á borð við Icelandair. Samstarf félaganna eykur valmöguleika viðskiptavina á flugi til Eystrasaltsríkjanna og með flugi í gegnum Riga til Búdapest, Prag, Varsjá og fleiri áfangastaða. Við hlökkum til samstarfsins við Icelandair sem mun gera viðskiptavinum okkar aukna möguleika á ferðalögum víða um heim,“ segir Martin Gauss, forstjóri airBaltic.