Gengi hlutabréfa Eimskips og Icelandair Group hækkaði í dag, þess fyrrnefnda um 0,92% en þess síðarnefnda um 0,26%. Lítil breyting varð annars á hlutabréfamarkaði utan lítilsháttarlækkunar bréfa í Högum. Viðskipti með bréf Icelandair Group námu 137 milljónum króna og viðskipti með bréf Eimskips rúmum 72 milljónum króna.

Gengi úrvalsvísitölunnar hækkaði um 0,02% í dag.