Icelandair og Íslenska auglýsingastofan hafa skrifað undir nýjan samning um að starfa áfram saman. Fyrirtækin hafa unnið saman í mörg ár á sviði markaðsmála sem hefur meðal annars skilað fjölda auglýsingaverðlauna. Þar á meðal eru íslensku markaðsverðlaunin fyrir markaðsfyrirtæki ársins og markaðsmann ársins.

Samningurinn tekur til markaðsstarfs hér á landi auk markaðs- og auglýsingastarfs erlendis, s.s. í Evrópu, Norður-Ameríku og ýmsum fjarlægari löndum.

Í tilkynningu er haft eftir Helga Má Björgvinssyni, framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Icelandair, að árangurinn af samstarfinu hafi verið mjög góður í gegnum árin.