Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,02% í dag en viðskipti á hlutabréfamarkaði námu rúmlega 1,4 milljarði króna. Aðalvísitala skuldabréfa lækkaði um 0,07% og stendur því í 1.364,44 stigum, en viðskipti með skuldabréf námu tæplega 2,8 milljörðum króna.

Fjarskipti, móðurfélag Vodafone, hækkuðu mest eða um 0,69% í 98 milljón króna viðskiptum en bréf félagsins stóðu í 65,50 krónum við lokun markaða. Næst mest hækkuðu bréf Marel Reita eða um 0,64% í 423 milljón króna viðskiptum sem voru jafnframt mestu viðskipti dagsins. Bréf félagsins standa því í 313,00 krónum.

Mest lækkun var á bréfum Icelandair en þau lækkuðu um 1,41% í 149 milljón króna viðskiptum og stóðu í 14,69 krónum við lokun markaða. Þá lækkuðu bréf Símans næst mest eða um 1,19 % í 145 milljón króna viðskiptum og stóðu í 4,16, krónum við lokun markaða.

Vísitölur Gamma

Hlutabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,02% í dag í 1,4 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala Gamma lækkaði um 0,07% í 1,6 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,18% í 0,3 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,16% í ríflega 1,3 milljarða viðskiptum.