Icelandair Hotels, dótturfélag Icelandair Group, mun opna nýtt hótel á Hljómalindarreitnum í miðbæ Reykjavíkur sumarið 2015. Hótelið mun heita Icelandair Hótel Reykjavík Cultura. Hljómalindarreiturinn er við Smiðjustíg og Hverfisgötu.

Í tilkynningu frá Icelandair Group segir að hótelið verði með nýstárlegan garð milli Hverfisgötu og Laugavegar þar sem aðstaða verður fyrir margskonar viðburði og skemmtanir. Hið nýja hótel mun hýsa 142 herbergi ásamt aðstöðu til veitingareksturs bæði úti og inni.

„Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi Icelandair Hotels og Þingvangs, sem jafnframt er lóðareigandi og mun sjá um framkvæmdina alla. Icelandair Hotels mun gera 25 ára leigusamning um hótelið,“ segir í tilkynningu. Magnea Þórey Hjálmarsdóttir er framkvæmdastjóri Icelandair Hotels.