Icelandair hefur ráðið til sín þrjá nýja stjórnendur. Guðný Halla Hauksdóttir hefur verið ráðin sem forstöðumaður þjónustuupplifunar, Hákon Davíð Halldórsson sem forstöðumaður framlínu á sölu- og þjónustusviði, og Jóhann Valur Sævarsson sem forstöðumaður gagna og sjálfvirkni.

Guðný Halla Hauksdóttir á að baki reynslu á sviði þjónustu við viðskiptavini en hún var forstöðumaður þjónustuupplifunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur síðastliðin sex ár. Áður hefur hún leitt þjónustu hjá Vodafone og Tal og starfað sem sérfræðingur þjónustumála hjá VÍS. Guðný Halla er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði og MBA gráðu frá Háskóla Íslands.

Hákon Davíð Halldórsson starfaði sem forstöðumaður stafrænnar umbreytingar hjá Sýn áður en hann sneri aftur til Icelandair en á árunum 2018-2020 starfaði hann á sviði þjónustuupplifunar hjá flugfélaginu. Hákon Davíð hefur reynslu úr tækni- og fjarskiptageiranum en hann starfaði sem sérfræðingur í viðskiptatengslum hjá Símanum um fimm ára skeið og áður sem markaðsstjóri hjá Opnum kerfum. Hann er með B.Sc. gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Jóhann Valur Sævarsson starfaði hjá Air Atlanta frá árinu 2019 þar sem hann stýrði teymum í hugbúnaðarþróun. Þá starfaði hann meðal annars sem gagnaverkfræðingur og við samþættingu kerfa hjá WOW air á árunum 2015-2019. Áður starfaði hann hjá Nova á um fimm ára skeið. Jóhann Valur er með B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í sömu grein frá Technical University of Denmark.