Þegar þetta er skrifað hefur hækkun á bréfum Icelandair numið 7,73% í 269 milljón króna viðskiptum frá því markaðir opnuðu og fæst nú hvert bréf félagsins á 14,21 krónu.

Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um skilaði Icelandair uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung ársins í gær eftir lokun markaða. Afkomuspá félagsins var hækkuð í kjölfar þess heildartekjur jukust um 5% á milli ára.