Icelandair tilkynnti á fundi með hópi flugmanna í þjálfun í dag að óhjákvæmilegt væri að stöðva þjálfun 21 nýliða sem til stóð að hæfu störf sem flugmenn á Boeing 737 MAX vélar félagsins í sumar, sem og slíta ráðningasamningi við 24 flugmenn sem hófu þjálfun á MAX vélarnar síðasta haust og höfðu hafið störf áður en vélarnar voru kyrrsettar.

Þessi ákvörðun var tekin í ljósi þess að félagið gerir ekki ráð fyrir MAX vélunum í flugáætlun sinni fyrr en um miðjan september nk., eins og fram kom í tilkynningu frá félaginu þann 24. maí sl.

„Það er þungbært að þurfa að grípa til þessarar sársaukafullu aðgerðar en við teljum það nauðsynlegt í ljósi þeirra erfiðu aðstæðna sem komnar eru upp vegna kyrrsetningar Boeing 737 MAX vélanna,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.

„Kyrrsetningin hefur talsverð neikvæð áhrif á rekstur félagsins og við verðum að leita allra leiða til að hagræða og draga úr kostnaði. Við vonumst þó til að geta gefið þessum flugmönnum kost á starfi hjá fyrirtækinu á ný þegar undirbúningur fyrir næsta sumar fer af stað en það kemur betur í ljós þegar málin skýrast varðandi MAX vélarnar.“

Icelandair mun bjóða aðstoð við atvinnuleit í samstarfi við ráðningastofu en einhverjir flugmannanna sem hafa til þess tilskilda þjálfun eiga kost á að fara í önnur störf hjá félaginu, t.d. sem flugliðar, flugumsjónarmenn eða í önnur störf.