Rúmlega 2 þúsund starfsmönnum hjá Icelandair verður sagt upp fyrir mánaðarmót, sem og sviðum hefur verið fækkað úr 8 í 7, þannig að í framkvæmdastjórn fækkar um einn, úr 9 í 8. Einnig hafa talsverðar skipulagsbreytingar verið gerðar innan sviða og deilda fyrirtækisins og við það fækkar stjórnendum í efstu lögum um 19.

Icelandair Group mun grípa til eftirfarandi aðgerða á næstu dögum vegna ástandsins sem skapast hefur vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins í heiminum:

  • Rúmlega tvö þúsund starfsmönnum verður sagt upp störfum. Uppsagnirnar ná til allra hópa innan félagsins, en þær hafa þó mest áhrif á störf beintengd framleiðslu, svo sem áhafnir, viðhaldsþjónustu og starfsfólk flug- og farþegaþjónustu.
  • Þeir sem starfa áfram hjá félaginu eru langflestir í skertu starfshlutfalli og aðrir í fullu starfi með skert laun.

Icelandair Group tilkynnti í Kauphöll nú fyrir stundu um yfirgripsmiklar aðgerðir hjá félaginu sem taka gildi um mánaðamótin. Um er að ræða uppsagnir starfsfólks og breytingar á skipulagi til að bregðast við þeirri stöðu sem félagið stendur frammi fyrir vegna útbreiðslu COVID-19 farsóttarinnar, með tilheyrandi ferðatakmörkunum, sem haft hefur gríðarleg áhrif á eftirspurn eftir flugi og ferðaþjónustu um allan heim.

Mikil óvissa ríkir um nánustu framtíð og eru aðgerðirnar liður í að búa félagið undir órætt tímabil þar sem starfsemi þess verður í lágmarki. Á sama tíma verður lögð áhersla á að halda uppi grunnstarfsemi á öllum sviðum til þess að tryggja þann sveigjanleika sem þarf til að félagið geti brugðist hratt við um leið og markaðir opnast á ný.

Félagið hefur á undanförnum vikum leitað allra leiða til að draga úr útstreymi fjármagns, svo sem með því að endursemja við birgja og fjármögnunaraðila. Stærsti kostnaðarliður félagsins er eftir sem áður launakostnaður og er því nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að draga úr þeim kostnaði. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins hefur verið boðað til starfsmannafundar fyrir flugfreyjur og flugþjóna kl 15.

Til viðbótar við þessar aðgerðir hafa breytingar verið gerðar á skipulagi félagsins. Starfseminni verður framvegis skipt í sjö svið í stað átta áður. Þau eru: Sölu- og þjónustusvið, fraktflutningasvið (Icelandair Cargo), flugvélaleiga og ráðgjöf (Loftleiðir Icelandic), flugrekstrarsvið, fjármálasvið, mannauðssvið og nýtt svið, viðskipta- og stafræn þróun.

Tómas Ingason , sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni verður framkvæmdastjóri nýs sviðs.

Ívar S. Kristinsson , sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri flugflota og leiðakerfis, verður ekki hluti af framkvæmdastjórn en mun áfram stýra flotamálum félagsins. Í kjölfar þessara breytinga verða átta í framkvæmdastjórn að meðtöldum forstjóra í stað níu áður.

Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair

„Þetta eru mjög erfiðar aðgerðir en því miður nauðsynlegar. Það er gríðarleg óvissa framundan og við þurfum að undirbúa okkur undir takmarkaða starfsemi hjá félaginu um óákveðinn tíma. Við vonumst til að aðstæður í heiminum fari að batna sem fyrst og að við getum boðið sem stærstum hluta starfsmanna sem um ræðir vinnu aftur. Markmiðið með þessum aðgerðum er jafnframt að tryggja grunnstarfsemi félagsins og halda nauðsynlegum sveigjanleika til að geta brugðist hratt við þegar eftirspurn tekur við sér á ný.“