Icelandair og rússneski flugrekandinn I Fly hafa undirritað samning um heildartækniþjónustu vegna fjögurra Boeing 757 farþegaþotna, sömu gerðar og Icelandair flýgur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en samkvæmt samningnum mun tækniþjónusta Icelandair annast alla viðhalds- og varahlutaþjónustu fyrir flota I Fly ásamt svokölluðu línuviðhaldi í Moskvu.

I Fly er nýstofnað flugfélag í eigu rússnesku ferðaskrifstofunnar Tez, og munu vélarnar fljúga með rússneska ferðamenn frá Moskvu til áfangastaða í Evrópu og miðausturlöndum. Samningurinn er til þriggja ára og er áætluð velta verkefnisins um þrír milljarðar króna á samningstímanum.

„Þetta er mjög ánægjulegur samningur,“ segir Jens Bjarnason, framkvæmdastjóri Tækniþjónustu Icelandair í tilkynningunni.

„Tækniþjónusta Icelandair er sérhæfð í Boeing 757 flugvélategundinni og er í fremstu röð faglega. Við erum að ná góðum árangri um þessar mundir í auknum verkefnum fyrir viðhaldsstöðina og það skapar ný atvinnutækifæri og verðmæti fyrir Icelandair. Við þurfum að bæta við okkur flugvirkjum og öðru tæknimenntuðu fólki til starfa vegna þessa samnings og teljum forsendur til frekari sóknar.“

Tækniþjónusta Icelandair annast alla viðhaldsþjónustu fyrir flugflota Icelandair, bæði þann hluta flotans sem sinnir áætlunarflugi milli Íslands og annarra landa og þess hluta sem sinnir leiguflugi í öllum heimsálfum. Meginhluti starfseminnar fer fram á Keflavíkurflugvelli en einnig er starfsstöð í Moskvu en starfsemin þar mun eflast að mun við þetta verkefni.

Starfsmenn Tækniþjónustu Icelandair starfa í raun um allan heim í samræmi við verkefni hverju sinni. Alls starfa í dag um 260 manns hjá Tækniþjónustu Icelandair.