Icelandair Group hefur skrifað undir tvær viljayfirlýsingar um að kanna möguleika á orkuskiptum í innanlandsflugi félagsins. Annars vegar við Universal Hydrogen sem tilkynnt var um í morgun, en það er fyrirtæki sem hefur hannað orkuskiptabúnað sem gæti breytt Dash-8 vélum Icelandair í vetnisknúnar vélar. Þá hefur félagið einnig skrifað undir viljayfirlýsingu við Heart Aerospace, sem vinnur að þróun farþegaflugvéla sem ganga fyrir rafmagni.

„Icelandair hefur metnað til að minnka kolefnisspor af flugstarfsemi og til þess að ná alþjóðlegum viðmiðum um kolefnislosun er ljóst að þörf er á umhverfisvænum lausnum í flugi sem hægt er að taka í notkun sem fyrst. Stuttar flugleiðir og greiður aðgangur að raforku af endurnýjanlegum uppruna setur Ísland í lykilstöðu hvað varðar orkuskipti í innanlandsflugi. Verkefnin falla einnig vel að stefnuramma stjórnvalda um framtíð ferðaþjónustu sem miðar að því að gera Ísland leiðandi í sjálfbærni,“ segir í fréttatilkynningu flugfélagsins.

Icelandair hefur unnið með Heart Aerospace um nokkurt skeið og mun á næstunni setja af stað greiningarvinnu í samvinnu við Universal Hydrogen. Á sama tíma mun félagið hefja samtal við helstu hagaðila, svo sem rafmagns- og vetnisframleiðendur, flutningafyrirtæki og flugvallarekendur.

„Icelandair setur markið hátt þegar kemur að umhverfismálum og við teljum okkur vera í góðri stöðu til að verða á meðal fyrstu flugfélaga heims til að gera innanlandsflug kolefnislaust. Heart Aerospace og Universal Hydrogen hafa kynnt spennandi lausnir sem henta vel fyrir innanlandsflug og hægt væri að taka í notkun innan fárra ára,“ segir Jens Þórðarson , framkvæmdastjóri flugrekstrar Icelandair Group.

„Eftir því sem tækninni fleygir fram vonumst við til þess að hægt verði að nýta þá reynslu sem skapast af orkuskiptum í innanlandsflugi til hraðari innleiðingar nýrra orkugjafa í millilandaflugi. Það er ánægjulegt að vera á meðal fyrstu þátttakenda í þessum verkefnum sem gætu gjörbreytt kolefnislosun í innanlandsflugi á fáum árum.“