Ráðgert er að skrifa undir kaupsamning hjá íslenskum fjárfestum og Loftleiðum, dótturfélagi Icelandair Group, á kaup á 51% hlut í ríkisflugfélaginu Cabo Verde Airlines á Grænhöfðaeyjum, en Viðskiptablaðið hefur fjallað ítarlega um samninga félaganna á milli og hugmyndir um að byggja á eyjunum nýjan tengipunkt yfir hafið að íslenskri fyrirmynd.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að kaupverðið sé trúnaðarmál. Að hluta til yrði greitt fyrir félagið með þeirri vinnu sem starfsmenn Loftleiða Icelandic hafa þegar innt af hendi. Loftleiðir Icelandic samning við stjórnvöld á Grænhöfðaeyjum um endurskipulagningu Cabo Verde Airlines í ágúst 2017.

„Markmið samkomulagsins var jafnframt að styrkja alþjóðaflugvöllinn á Grænhöfðaeyjum, að byggja eyjarnar upp sem vænlegan áfangastað og að byggja upp tengiflugsbanka fyrir alþjóðaflug. Þá lá jafnframt fyrir að hugað væri að einkavæðingu félagsins. Cabo Verde Airlines hefur nú þegar rekstrarleyfi til að fljúga áætlunarflug til Evrópu og Bandaríkjanna,“ segir í tilkynningunni.

Kaupin fara fram í gegnum félagið Loftleiðir Cabo Verde. Loftleiðir Icelandic eiga 70% hlut í félaginu en aðrir fjárfestar 30%. Meðal fjárfestanna, eru Baldvin Þorsteinsson, stjórnarformaður Eimskips og Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group.

Kaupin eru sögð hafa óveruleg áhrif á reikningsskil Icelandair Group þar sem Cabo Verde Airlines mun ekki verða hluti af samstæðureikningi Icelandair Group. Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic telur mikil tækifæri felst í kaupunum þar sem búist er við mikilli fjölgun farþega í Afríku á næstu árum.

„Við höfum nú þegar komið að endurskipulagningu félagsins og rekstur Cabo Verde Airlines fellur vel að þeim verkefnum sem Loftleiðir Icelandic sinna víða um heim. Sú þekking og reynsla sem þegar er til staðar innan Loftleiða Icelandic og systurfélaga hefur nýst vel við endurskipulagningu félagsins og myndi nýtast áfram við frekari uppbyggingu. Þá væri möguleiki á að nýta flugvélar úr flota Icelandair Group og eftir atvikum áhafnir, líkt og gert er nú þegar,“ segir Árni.

„Við myndum jafnframt sækja frekar í reynslu Icelandair hvað varðar uppbyggingu tengiflugs. Í tilfelli Cabo Verde Airlines eru til staðar tækifæri fyrir vel skipulagt tengiflug á milli Evrópu og Suður Ameríku annars vegar og Vestur Afríku og Norður Ameríku hins vegar, ásamt Vestur Afríku og Evrópu. Staðsetning eyjanna er ákjósanleg fyrir slíka uppbyggingu.“

Hér má lesa frekari fréttir um málið: