Icelandair var stundvísasta flugfélagið frá Keflavík í febrúar og nær þeim titli af easyJet sem var stundvísast í janúar.

Hlutfall brottfara Icelandair á réttum tíma voru 79% og hlutfall lendinga á réttum tíma voru 70%. Sömu hluföll hjá WOW air voru 69% við brottfarir og 50% við lendingar. Athygli vekur að easyJet er með versta hlutfall brottfara á réttum tíma, eða 66%, en besta hlutfall lendinga á réttum tíma, eða 80%.

Þegar skoðuð eru heildarhlutföll fluga á réttum tíma þá er, eins og áður sagði, Icelandair með besta hlutfallið eða 75%, easyJet er næst með 73% og WOW air er með 60% hlutfall.