Icelandair var rekið með 86,5 milljón dollara tapi, jafnvirði 10,7 milljarða króna á fyrri helmingi ársins. Versnar afkoman um 34 milljónir dollara á milli ára. Á síðasta ársfjórðungi, frá apríl og út júní nam tapið 40,9 milljónum dollara miðað við 25 milljón dollara tap á sama tímabili í fyrra.

Í uppgjöri Icelandair sem birt var nú fyrir skömmu kemur fram að kyrrsetning Boeing 737 Max flugvélanna liti afkomuna mjög. Sé horft fram hjá kyrrsetningu vélanna sé gert ráð fyrir 50-70 milljóna dollara rekstrarhagnaði (EBIT) á þessu ári en 70-90 rekstrartapi að teknu tilliti til áhrifa kyrrsetningarinnar. Miðað við það mun kyrrsetningin kosta flugfélagið 120-140 milljónir dollara á árinu eða sem samsvarar 15 til 17 milljörðum króna.

Þá sé rekstrarábati upp á 25,9 milljónir dollara sé horft fram hjá áhrifum kyrrsetningarinnar sem kostaði félagið 50 milljónir dollara frá apríl og út júní. Félagið flutti 39% fleiri farþega til Íslands á öðrum ársfjórðungi en á sama tíma 2018.

Kyrrsetningin fordæmalaus

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group segir kyrrsetninguna fordæmalausa. „Fyrirhugað var að MAX vélarnar myndu samsvara 27% af sætaframboði félagsins á árinu 2019 og því er sú staða sem komin er upp vegna kyrrsetningar MAX vélanna fordæmalaus og hefur veruleg áhrif á rekstur og afkomu félagsins. Í þessum aðstæðum höfum við lagt höfuðáherslu á að lágmarka tjón félagsins og áhrif kyrrsetningarinnar á farþega og íslenska ferðaþjónustu með því að bæta leiguvélum við flota félagsins í sumar. Þá hefur það verið forgangsverkefni hjá okkur að tryggja flugframboð til og frá Íslandi og þannig hefur farþegum Icelandair til Íslands fjölgað um 39% á öðrum ársfjórðungi samanborið við sama tímabil í fyrra. Þrátt fyrir þessar mótvægisaðgerðir, sem hafa komið í veg fyrir stórfelldar niðurfellingar á flugi, hefur orðið talsverð röskun á flugáætlun okkar og starfseminni allri. Þetta hefur haft áhrif á farþega okkar og valdið flóknum úrlausnarefnum innan félagsins. Starfsfólk Icelandair á mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína við mjög erfiðar aðstæður á háannatíma þar sem allir hafa lagst á eitt að leysa eins farsællega úr málum og mögulegt er.

Markmið félagsins er áfram skýrt – að bæta arðsemi og rekstur félagsins til framtíðar. Við höfum ráðist í fjölmargar aðgerðir á síðustu misserum sem eru þegar byrjaðar að skila árangri en afkoma félagsins, án þegar áætlaðra áhrifa MAX kyrrsetningarinnar, hefur batnað milli ára. EBIT er jákvætt um 25,9 milljónir USD, án þegar áætlaðra áhrifa kyrrsetningar MAX véla, og eykst á milli ára um 45,7 milljónir USD.

Þá gekk reynslumikill alþjóðlegur fjárfestir, PAR Capital Management, til liðs við hlutahafahóp félagsins í apríl og þar að auki undirrituðum við kaupsamning vegna sölu á Icelandair Hotels og tengdum fasteignum í júlí. Hvort tveggja styrkir stöðu Icelandair Group enn frekar og er mikilvæg staðfesting á góðum langtímahorfum félagsins og framtíðartækifærum í íslenskri ferðaþjónustu,“ er haft eftir Boga Nils.