Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Icelandair hafa samið um að Icelandair taki að sér miðasölu á Íslandi fyrir Ólympíuleikana sem verða haldnir í London 27. júlí til 12. ágúst 2012. Miðasala er hafin víða um heim en hefst á Íslandi 3. maí nk.

Í samkomulaginu felst að Icelandair verður söluaðili á Íslandi fyrir aðgangsmiða á einstaka viðburði á Ólympíuleikunum. Í tengslum við miðasöluna mun Icelandair einnig bjóða sérsniðnar pakkaferðir til London. Þátttaka íslenskra íþróttamanna á leikunum skýrist nánar síðar á þessu ári og á fyrri hluta ársins 2012, og er gert ráð fyrir að fyrirkomulag sölunnar taki m.a. mið af árangri þeirra.