Gengi hlutabréfa Icelandair Group féll um 2,22% í Kauphöllinni í dag. Eins og aðra daga var talsverð velta með hlutabréfin en hún nam 254 milljónum króna í dag. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa fasteignafélagsins Regins um 1,29%. Þá lækkaði gengi bréfa VÍS um 0,97%, N1 um 0,54%, Sjóvár um 0,49% og TM um 0,20%.

Á móti hækkaði gengi bréfa Haga um 0,89%, Marel um 0,41% og HB Granda um 0,17%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,55% og endaði hún í 1.144 stigum. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam 362,7 milljónum króna.