Gengi hlutabréfa Icelandair Group hefur hækkað um 52% þegar þetta er skrifað en viðskipti með bréf félagsins hófust aftur fyrir skömmu. Eins og Viðskiptablaðið var fyrst til að segja frá voru viðskipti með bréf félagsins stöðvuð rétt áður en tilkynning um kaup Icelandair á WOW voru tilkynnt.

Þá er allt iðjagrænt í kauphöllinni. Gengi bréfa VÍS hefur hækkað um 5,25, Sjóvá um 6% auk þess sem úrvalsvísitalan hefur hækkað um 4,8% þegar þetta er skrifað.

Þá hefur ávöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkisskuldabréfa hríðlækkað og er lækkuninn á bilinu 22-29 punktar.