Icelandair hefur tilkynnt um sumaráætlun sína sem er nú komin í sölu. Flugfélagið bætir fjórum áfangastöðum við leiðakerfið, Róm, Nice, Alicante og Montreal. Icelandair flýgur alls til 43 áfangastaða í millilandaflugi næsta sumar.

Í tilkynningu segir að Róm og Nice bættust í dag við sem nýir áfangastaðir í leiðakerfinu. Til viðbótar var Montreal nýverið bætt við á ný auk þess sem Alicante færist nú yfir í leiðakerfi Icelandair, en félagið hefur hingað til flogið til Alicante í leiguflugi.

  • Róm - Flugtímabil: 6. júlí til 4. september. Flogið tvisvar í viku á miðvikudögum og sunnudögum.
  • Nice - Flugtímabil: 6. júlí til 27. ágúst. Flogið tvisvar í viku á miðvikudögum og laugardögum.
  • Montreal - Flugtímabil: 24. júní til 25. september. Flogið þrisvar í viku á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum.
  • Alicante - Flugtímabil: fram til loka október. Flogið einu sinni til tvisvar í viku á fimmtudögum og sunnudögum.

Icelandair flýgur samtals til 43 áfangastaða í millilandaflugi sumarið 2022. Þar af eru 29 áfangastaðir í Evrópu og 14 áfangastaðir í Norður-Ameríku.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:

„Við höfum verið að byggja starfsemi okkar upp aftur jafnt og þétt á sama tíma og við höfum þurft að aðlaga okkur að aðstæðum hverju sinni. Sumaráætlun okkar liggur nú fyrir þar sem við erum með erum með 43 áfangastaði þar á meðal nýja og spennandi staði sem eru Róm og Nice. Þá er ánægjulegt að færa Alicante inn í leiðakerfið á sama hátt og við gerðum með Tenerife á síðasta ári sem hefur verið gríðarlega vel tekið.“

Heilsársáfangastaðir Icelandair eru eftirfarandi: Kaupmannahöfn, Stokkhólmur, Oslo, Helsinki, Amsterdam, París, Berlín, Frankfurt, Munchen, Zurich, London, Glasgow, Manchester, Dublin, Boston, New York, Seattle, Washington, Denver, Chicago, Toronto, Tenerife, Nuuk og Kulusuk.

Árstíðarbundnir áfangastaðir: Róm, Nice, Montreal, Alicante, Raleigh-Durham, Bergen, Billund, Hamborg, Genf, Brussel, Minneapolis, Vancouver, Portland, Anchorage, Baltimore, Mílanó, Madrid, Salzburg, Orlando, Ilulissat og Narsarsuaq.