Icelandic Glacial Water, vatnsfyrirtæki Jóns Ólafssonar, hefur gert samninga við fjölmiðlafyrirtæki Tribune, Los Angeles TImes Media Group annars vegar og Sun Sentinel hins vegar. Hægt verður að fá sent vatn heim að dyrum með dreifingu Los Angeles Times í Kaliforníu og Sun Sentinel í Flórída.

Jón Ólafsson segir þetta sennilega það langstærsta sem Icelandic Glacial hafi gert. Áskrifendur blaðanna geta því fengið Icelandic Glacial vatnsflöskur með dagblöðunum. Í tilkynningu frá félaginu er sagt að með þessari leið megi meðal annars draga úr mengun.