Icelandic Water Holdings, eigandi vörumerkisins Icelandic Glacial, og Coca-Cola European Partners á Íslandi ehf (Coca-Cola á Íslandi) skrifuðu í gær undir áframhaldandi samstarfssamning um dreifingu vara Icelandic Glacial hér á landi og nær samningurinn nú einnig yfir nýjar vörur Icelandic Glacial sem verður dreift samhliða vörutegundum Coca-Cola á Íslandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Icelandic Glacial er í miklum vexti á alþjóðavettvangi en heimamarkaðurinn er okkur ekki síður mikilvægur og erum við ánægð með áframhaldandi samstarf okkar við Coca-Cola á Íslandi. Það eru spennandi tímar framundan en von er á nýjum vörum frá okkur á næstu mánuðum sem við hlökkum til að kynna,“ er haft eftir Jóni Ólafssyni, stofnanda og stjórnarformanni Icelandic Glacial.

Vöruframboð Icelandic Glacial er fjölbreytt og fæst lindarvatnið úr Ölfusi í plastflöskum, í gleri með og án kolsýru, og kolsýrt í plastflöskum með og án bragðefna. Nýjar vörur verða kynntar til leiks á næstunni þegar framleiðsla hefst á kolsýrðu vatni með og án bragðefna í dósum, kolsýrðu vatni með ferskum bragðtegundum í gleri og Bag in Box sem eru 5L og 20L vatnsbelgir í kassa sem henta vel í ísskápa eða á skrifstofur.

Icelandic Glacial er náttúrulegt lindarvatn sem tekið er úr uppsprettu lindarvatns í Ölfusi. Í mestu mögulegu framleiðslu fyrirtækisins er tekið sem samsvarar 1% af heildarvatnsstraumi Ölfus bergvatnslindarinnar, sem annars rynni til sjávar.

„Við hjá Coca-Cola á Íslandi leggjum áherslu á að bjóða viðskiptavinum okkar og neytendum fjölbreytt úrval hágæða vatnsdrykkja fyrir mismunandi markhópa. Vörumerkið Icelandic Glacial hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir gæði, hreinleika og útlit umbúða og er framleitt í verksmiðju sem er vottuð kolefnishlutlaus. Það fellur vel að sjálfbærnistefnu okkar og markmiðum í loftslagsmálum og fellur einnig vel að þörfum viðskiptavina okkar,“ segir Einar Snorri Magnússon forstjóri Coca-Cola European Partners á Íslandi.