Icelandic Water Holdings, sem framleiðir Icelandic Glacial vatnið, hefur náð samningum við OTG Management veitingaþjónustuna, sem rekur fleiri en 80 veitingastaði á níu flugvöllum víðs vegar um Bandaríkin, um sölu á vatninu á veitingastöðum fyrirtækisins. Samningurinn tekur strax gildi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandic Water Holdings. Vatnið verður til sölu í Cibo Gourmet veitingastöðunum sem reknir eru af OTG Management. Samningurinn nær til allra níu flugvallana sem OTG er með starfsemi á og þar á meðal eru JFK og LaGuardia í New York, Logan í Boston, O’Hare í Chicago og Washington Dulles.

„Markmið okkar er  að auka dreifingu vatnsins í Bandaríkjunum,” segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður og annar af stofendum Icelandic Water Holdings í tilkynningunni.

„Vatnið er nú í boði á nokkrum af fjölförnustu flugvöllum Bandaríkjanna sem gríðarlegur fjöldi fólks fer um á ári hverju og við erum virkilega ánægð með þetta samstarf.”

Samningurinn er sá fjórði í röðinni hjá Icelandic Water Holdings á stuttum tíma sem tengist flugi. Áður hefur fyrirtækið gert samning við flugfélögin Icelandair, NetJets Europe og AirTran Airways um sölu á vatninu.