Icelandic Group hefur samið um kaup á fiskvinnslufyrirtækinu Ný-Fiski í Sandgerði. Fram kemur í tilkynningu frá Icelandic Group að stefnt sé að því að ljúka kaupum fyrir lok árs.

Fram kemur á vefsíðu Ný-Fisks að fyrirtækið var stofnað árið 1996. Starfsmenn þess eru tæplega 100.

Ekkert er gefið upp um kaupverðið í tilkynningu Icelandic Group.

Icelandic Group er í eigu Framtakssjóðs Íslands. Að sjóðnum koma Landsbankinn og sextán lífeyrissjóðir.