Gert er ráð fyrir að verðmæti alls hlutafjár Icelandic Group sé 13,9 milljarðar króna, samkvæmt samningi sem gerður var við kaup Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) á Vestiu, eignarhaldsfélagi Landsbankans. FSÍ greiddi 15,5 milljarða króna fyrir eignarhaldsfélagið en innan þess eru einnig Teymi, Húsasmiðjan og Plastprent. Landsbankinn heldur eftir 19% hlut í Icelandic Group og hefur FSÍ kauprétt á þeim hlut í allt að 12 mánuði.

Þetta kemur fram í skriflegu svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar Alþingismanns um söluna á Vestiu. Fyrirspurnin var:

Á hvaða verði og kjörum selur Landsbankinn EJS, HugAx, Húsasmiðjuna, Icelandic Group, Plastprent, Skýrr, Teymi og Vodafone? Hvernig skiptist kaupverðið, hvert verður virði hlutafjár og skulda og hvaða skuldir verða yfirteknar? Svar óskast sundurliðað eftir fyrirtækjum.

Tekið er fram í svarinu að kaupverð á Icelandic geti lækkað vegna ákvæða um skaðleysi eða ef tilteknar forsendur varðandi rekstur félagsins bregðast.

Kaupverð annarra eignarhluta var ekki sundurliðað samkvæmt samningnum en umsamið heildarkaupverð þeirra hluta er 4,25 milljarðar króna. Landsbankinn eignast jafnframt um fjórðungshlut í FSÍ.

Fjármálaráðuneytið óskaði eftir upplýsingum við fyrirspurninni hjá Bankasýslunni, sem fer með hlut ríkissjóðs í Landsbankanum. Bankasýslan bjó ekki yfir upplýsingunum en óskað var eftir þeim frá Landsbankanum og byggja svörin á þeim upplýsingum. Í svörum bankans kemur fram að hann telur sér almennt ekki skylt að svara fyrirspurnum alþingismanna um önnur málefni en þau sem teljast opinber. „Einnig er í kaupsamningi um umræddar eignir að finna skuldbindingu um að aðilar veiti ekki upplýsingar um efni hans nema lög mæli svo fyrir eða aðilar verði sammála um að veita afmarkaðar upplýsingar um efni hans. Enn fremur ber að geta þess að ekki er unnt að veita upplýsingar um viðskiptamálefni þeirra félaga sem samningurinn tekur til.“

Framtakssjóður Íslands ræðir nú við evrópska fjárfestingafélagið Triton um kaup á erlenda hluta Icelandic Group.

Svar fjármálaráðherra.