Stjórn Icelandic Group hefur samþykkt að nýta heimild sína samkvæmt samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um allt að 135.000.000 krónur að nafnverði með útgáfu nýrra hluta, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Verða hinir nýju hlutir afhentir í skiptum fyrir hluti í Saltur A/S í samræmi við samning Icelandic Group hf., AB Holding, Lemvig APS, og RS Holding, Lemvig APS.