Icelandic Group hefur komist að samkomulagi um sölu á dótturfélagi sínu í Belgíu, Gadus, til Steinasala ehf.

Gadus er leiðandi framleiðslu-, sölu- og dreifingaraðili á ferskum sjávarafurðum. Að baki Steinasölum standa Sigurður Gísli Björnsson hjá Sæmarki-sjávarafurðum, Akur fjárfestingar, Hjalti Halldórsson og Bjartmar Pétursson hjá Fishproducts Iceland ásamt öðrum íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum.

Stjórn Icelandic Group tilkynnti um söluferli á Gadus í janúar síðastliðnum. Samkvæmt fréttatilkynningu á vef Framtakssjóðs Íslands (eiganda Icelandic Group) frá því í gær sýndu fjölmargir innlendir sem og erlendir aðilar áhuga á kaupum á félaginu. Á endanum var gengið til samninga við Steinasali. Icelandic Group naut ráðgjafar Íslandsbanka og Deloitte var ráðgjafi kaupanda.

Söluverð Gadus er ekki gefið upp, en samkvæmt fréttatilkynningunni er markmið Steinasala með kaupunum að efla sölu og markaðssetningu á íslenskum sjávarafurðum í Belgíu og mið-Evrópu.

Helstu söluvörur Gadus eru þorskur og lax til smásölu- og heildsöluaðila í Belgíu. Um 7.000 tonn af vörum fara árlega um verksmiðju félagsins og starfsmenn eru um 130 talsins. Tekjur Gadus námu ríflega 83 milljónum evra árið 2016.

Í fréttatilkynningunni er haft eftir Herdísi Dröfn Fjeldsted, stjórnarformanni Icelandic Group og framkvæmdastjóra Framtakssjóðs Íslands, að aðkoma íslenskra aðila í sjávarútvegi að Gadus sé mjög jákvætt skref fyrir félagið.

„Icelandic Group keypti Gadus árið 2012 sem þá var að fullu í erlendri eigu með það að markmiði að opna nýtt markaðssvæði fyrir íslenskar sjávarafurðir,“ segir Herdís. „Við erum því afar ánægð með þessa niðurstöðu og teljum að aðkoma íslenskra aðila í sjávarútvegi að Gadus sé mjög jákvætt skref fyrir félagið og gefi því enn frekari tækifæri að efla ímynd og verðmæti íslenskra sjávararfurða í mið-Evrópu. Við óskum Steinasölum heilla með kaup á sterku og spennandi félagi.“

Einnig er haft eftir Sigurði Gísla Björnssyni að fjárfestingin í Gadus auki verðmæti íslenskra fiskafurða. „Gadus er mjög spennandi félag. Markmið fjárfesta með kaupunum er að tryggja það að íslenskur sjávarútvegur ráði áfram yfir órofinni virðiskeðju frá veiðum til neytenda. Beinn aðgangur íslensks sjávarútvegs að erlendum neytendamörkuðum er afar mikilvægur hlekkur í þeirri keðju að hámarka verðmæti auðlindar þjóðarinnar.“