Hagnaður af rekstri sjávarútvegsfyrirtækisins Icelandic Group á síðasta ári nam 660 þúsund evrum, eða jafnvirði tæplega 110 milljónum króna. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins sem mbl.is vísar til. Ársreikningurinn var gerður opinber 11. september siðastliðinn.

Magnús Bjarnason, forstjóri Icelandic Group í desember 2012, segir að afkoman hafi verið í takti við væntingar, en hún sé ekki ásættanleg til lengri tíma. Afkoman skýrist meðal annars af aðstæðum á alheimsmörkuðum.

Icelandic Group er að fullu í eigu Framtakssjóðsins.