Icelandic Group [ IG ] tapaði 2,5 milljónum evra á þriðja fjórðungi ársins en á sama tímabili í fyrra var tæplega 1 milljónar evru hagnaður af rekstrinum. Meðalspá greiningardeildar bankanna hljóðaði upp á 4,8 milljóna evra hagnað. Í Vegvísi Landsbankans segir að uppgjörið sé slakt og í Hálffimm fréttum Kaupþings segir að uppgjörið sé afleitt.

Velta Icelandic Group nam 327 milljónum evra, sem er talsvert undir veltu sama fjórðungs í fyrra, sem og spá greiningardeilda bankanna. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, nam 8,5 milljónum evra, en meðalspá hljóðaði upp á 13,5 milljónir evra.

Hagræðing frestast fram á næsta ár

Í tilkynningu frá félaginu er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni forstjóra þess að áætlanir hafi gert ráð fyrir því að hagræðingin sem unnið hafi verið að frá því í júlí í fyrra skilaði sér í betra uppgjöri í ár. „Svo er ekki og hafa margvíslegar ástæður orðið þess valdandi að við erum enn að. Nú liggur fyrir að hagræðingin mun ekki koma til fullra áhrifa fyrr en í upphafi næsta árs. Flest fyrirtæki sem hafa verið í umbreytingarferli sýna bættan rekstur en ljóst er að tímaþátturinn var vanmetinn hjá okkur. Rekstur Icelandic er víða kominn á gott skrið og margar einingar eru að skila ágætri framlegð. Við erum nú að ljúka sölu á einingum sem ekki hafa verið að skila nægilegri framlegð og er það hluti af hagræðingarferlinu að selja þær einingar sem ekki hafa verið að standa undir væntingum og styrkja þær sem hafa gengið vel. Rekstur Pickenpack Gelmer olli miklum vonbrigðum og hafði hann neikvæð áhrif á rekstur og framlegð samstæðunnar á tímabilinu. Veðurfar í Bretlandi hafði áhrif á sölu í fjórðungnum og einnig dró úr eftirspurn í lok fjórðungsins í Bandaríkjum.

Stóra breytan í þessu uppgjöri liggur í afkomu Pickenpack Gelmer í Frakklandi þar sem rekstrarniðurstaðan er slök og langt frá áætlunum. Félagið er hluti af Icelandic Holding Germany sem unnið er að sölu á.

Það er bjargföst trú mín að hagræðingarferlið, sem við fórum af stað með í júlí og ágúst á síðasta ári, muni skila hluthöfum auknum verðmætum og enn betra félagi. Ljóst  er að félagið mun ekki ná þeim EBITDA markmiðum sem sett voru fyrir árið 2007 og tóku mið af því að hagræðingarferlinu lyki fyrr en raunin er.“

Sterkasti fjórðungur ársins framundan

Í tilkynningunni segir að í hönd fari sterkasti fjórðungur í rekstri félagsins. Rekstur í Bandaríkjunum og Asíu sé talinn muni ganga vel á fjórða fjórðungi og í samræmi við áætlanir. „Með sölu á Icelandic Holding Germany mun rekstur eininganna í Evrópu skila betri afkomu. Rekstur Coldwater hefur batnað mikið en enn er unnið að breytingum þar. Fiskverð hefur tekið að hækka á ný að undanförnu sem getur haft áhrif á sölu félagsins og þar með afkomu. Unnið er að því að koma verðhækkunum út sem fyrst en jafnframt að horfa til eldistegunda í auknu mæli. Sala í þriðja ársfjórðungi var verulega undir áætlunum okkar en það er von okkar að sala í fjórða ársfjórðungi haldist í takt við áætlanir,“ segir í tilkynningunni.