Finnbogi A. Baldvinsson, forstjóri Icelandic Group[ IG ], telur að hráefnisverð matvæla muni halda áfram að hækka á næstunni. „En hugsanlega eigum við eitthvað auðveldara með að koma hráefnishækkunum og afurðaverðshækkunum í gegn núna, þar sem önnur matvara og önnur matvæli eru að hækka mikið,“ sagði Finnbogi á aðalfundi félagsins.