Icelandic Startups hefur ráðið til sín þrjá sérfræðinga til að efla stuðning félagsins við frumkvöðla og sprotafyrirtæki í þeim verkefnum sem framundan eru. Viðskiptahraðallinn Startup SuperNova hefur göngu sína í vikunni auk þess sem Icelandic Startups gerði á dögunum samstarfssamning við Landsvirkjun um nýtt verkefni á sviði hátæknimatvælaframleiðslu og líftækni á Suðurlandi.

Atli Björgvinsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri hjá Icelandic Startups.

Atli er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og hefur undanfarin ár starfað sem verkefnastjóri í markaðsdeild Vodafone, nú Sýnar, þar sem hann stýrði síðast markaðsstarfi Vodafone á Íslandi og bar ábyrgð á stórum sem smáum herferðum fyrirtækisins.

Þá munu Edit Ómarsdóttir og Elsa Bjarnadóttir taka við starfi verkefnastjóra.

Edit lauk BSc prófi í tölvunarfræði með áherslu á lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019 og hefur síðan starfað sem hugbúnaðarsérfræðingur hjá Origo. Edit vann að ýmsum rannsóknarverkefnum samhliða námi og átti sæti í stjórn /sys/tur félags kvenna í tölvunarfræði við HR. Teymið hennar Statum hlaut verðlaun í frumkvöðlakeppninni Gullegginu fyrir bestu stafrænu lausnina árið 2019.

Elsa er menntuð í vefhönnun og -þróun og starfaði áður sem viðmótshönnuður fyrir Stafrænt Ísland hjá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hún starfaði þvert á stofnanir ríkisins og kom meðal annars að því að innleiða nýtt ferli fæðingarorlofssjóðs. Elsa hefur einnig víðtæka reynslu af stjórnun reksturs og mannauðs- og markaðsmálum úr veitingageiranum.

Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups segir mikinn feng í þessum kraftmikla liðsauka. „Stuðningur við frumkvöðlastarf og nýsköpun hefur sjaldan verið mikilvægari og framundan eru fjölmörg verkefni. Við erum afskaplega stolt af því að fá þetta öfluga fólk inn í teymið til að taka þátt í að byggja upp framúrskarandi stuðningsumhverfi fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki.“

Undanfarin ár hafa að meðaltali borist um 500 nýjar viðskiptahugmyndir inn á borð til Icelandic Startups. Hlutverk félagsins er að skapa vettvang til tengslamyndunar og veita einstaklingum og teymum leiðsögn við mótun viðskiptaáætlana til að komast hratt að því hvort nægilegar viðskiptalegar forsendur séu til staðar og styðja þá við ferlið þar til vara er komin á markað.