Icelandic USA, Inc, dótturfélag Icelandic Group hf., ætlar að loka verksmiðju sinni í Cambridge, Maryland fyrir lok árs 2007, segir í tilkynningu. Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að félagið getur sinnt allri framleiðslu og dreifingu fyrirtækisins í verksmiðju sinni í Newport News, VA og í nýlegri dreifingarmiðstöð sem einnig er staðsett í Newport News.

Lokunin á Cambridge verksmiðjunni mun hafa í för með sér áætlaða virðisrýrnun að fjárhæð um 0,8 milljarða króna (EUR 9 milljónir) sem mun gjaldfærast á fjórða ársfjórðungi 2006. Til viðbótar mun falla til um 0,4 milljarða (EUR 4 milljónir) endurskipulagningarkostnaður á sama ársfjórðungi. Lokunin mun skila sér í verulegri lækkun á kostnaði. Áætluð árleg aukning á EBITDA er um 1,0 milljarður króna (EUR 11 milljónir) sem mun koma inn í bækur félagsins að fullu á árinu 2008.

Verksmiðjan, sem hefur langa sögu í framleiðslu á sjávarafurðum, hefur starfað á austurströnd Maryland síðan 1968 og starfa þar u.þ.b. 400 manns. Framleiðslan í verksmiðjunni mun verða óbreytt á fyrsta ársfjórðungi 2007. Eftir það mun hún minnka smá saman og endanlega hætta í lok árs 2007.

?Lokun á Cambridgeverksmiðjunni er lokahnykkurinn í sameiningu Icelandic USA og Samband of Iceland sem hófst á árinu 2005. Arðsemi af starfsemi Icelandic í Bandaríkjunum hefur ekki verið nægjanlega góð mörg undanfarin ár og er þessi aðgerð nauðsynleg til að bæta þar úr.

Verksmiðjan í Cambridge er orðin gömul og óhagkvæm. Verksmiðjan í Newport News er 30 árum yngri og mun hagkvæmari. Við þessa breytingu verður Newport News verksmiðjan nýtt mun betur en áður sem mun skila sér í bættri afkomu," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandic Group.