IceMar hefur ráðið Björn Thor Jónsson til starfa sem sölustjóra félagsins, en hann er sagður hafa mikla reynslu af sjávarútvegi, þá sérstaklega við kaup og sölu sjávarafurða í fréttatilkynningu.

Björn er nú búsettur á Íslandi eftir að hafa starfað og búið á Spáni, Þýskalandi, Frakklandi og Englandi í yfir 25 ár, en hann hefur starfað fyrir íslensk fyrirtæki, sem og spænsk og kanadísk fyrirtæki í sölu og markaðssetningu sjávarafurða.

IceMar ehf var stofnað í apríl árið 2003 og sérhæfir sig í útflutningi og dreifingu á íslenskum sjávarafurðum, en helstu markaðir félagsins eru innan Evrópu og norður Ameríku.

Frystar afurðir vegið upp útflutning á ferskum fiski

Rekstrarhagnaður félagsins fyrir árið 2019 nam um 145 milljónum króna fyrir skatta. Félagið segir árið 2020 jafnframt líta ágætlega út þrátt fyrir COVID ástandið og búast megi við álíka árangri þetta árið ef fram heldur sem horfir.

Útflutningur félagsins á ferskum fiski með flugi hefur dregist nokkuð saman vegna COVID en viðskipti félagsins með frystar afurðir, beint og óbeint inn á smásölumarkaði vestan hafs og austan hafa aukist töluvert á árinu.