Greinendur CNBC sjónvarpsstöðvarinnar tóku upp málstað Íslands í Icesave-deilunni gegn Bretum og Hollendingum með afgerandi hætti í umfjöllun stöðvarinnar um málið í gær.
Þar héldu þeir því fram að Bretar hefðu komið fram við Ísland af meiri hörku en þau ríki Evrópusambandsins sem hefðu valdið Evru-samstarfinu miklum erfiðleikum, þrátt fyrir að breska ríkið bæri sjálft hluta ábyrgðarinnar á því sem átti sér stað með Icesave.
Annar greinandinn sagði að framkoma Breta gagnvart Íslendingum í málinu væri ein sú versta sem hann myndi eftir og að afar illa hefði verið haldið á málum hjá bæði Hollendingum og Bretum. Breska ríkið hefði til að byrja með aldrei átt að ábyrgjast innstæður á Icesave-reikningunum og greiða þær út með þeim hætti sem það gerði. Greinilegur vilji sé á Íslandi til að greiða höfuðstól skuldarinnar út þrotabúi Landsbankans en greinandinn telur að öðru leyti að afskrifa eigi þá upphæð sem breska ríkið hefur lagt út í málinu. Alltaf hafi legið fyrir að Ísland gæti ekki staðið undir þeirri skuldabyrði sem Icesave-samningarnir myndu leggja á ríkið.
Umfjöllunina má sjá hér