Starfsmenn Icewear munu allir mæta til vinnu á morgun en fyrirtækið hefur fengið nýtt húsnæði fyrir skrifstofur sínar og lager að því er mbl.is greinir frá . Húsnæði félagsins Miðhrauni 4 í Garðabæ brann í síðustu viku.

Skrifstofa og lager verða þó ekki í sama bæjarfélagi. Lagerhúsnæðið verður í Suðurhrauni í Garðabæ, í næstu götu við miðhraun en skrifstofurnar verða í Hlíðarsmára í Kópavogi.

Eldsvoðinn tók á starfsmenn fyrirtækisins en þeir fengu áfallahjálp hjá sálfræðingi Rauða krossins í kjölfar hans. Allir munu þó mæta til vinnu á morgun.