Fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtækið Icora Partners hefur fengið nýtt nafn og heitir nú Alfa Framtak ehf. Fyrirtækið var stofnað árið 2010 af þeim Gunnari Páli Tryggvasyni og Friðriki Jóhannssyni sem báðir höfðu langa reynslu af störfum á fjármálamarkaði, bæði á Íslandi og erlendis. Fyrirtækið sinnti til að byrja með aðallega ráðgjöf við kaup og sölu á fyrirtækjum. Á meðal helstu verkefna þess má nefna sölu á tryggingafélaginu Verði, KEA hótelunum og endurskipulagningu Nordic Partners eignarhaldsfélagsins.

Snemma árs 2018 varð áherslubreyting hjá félaginu þegar það hóf rekstur 7 milljarða króna framtakssjóðs, með áherslu á umbreytingaverkefni, en á sama tíma bættust þeir Yngvi Halldórsson og Árni Jón Pálsson í hóp eigenda fyrirtækisins.

Alfa fjárfestir í fyrirtækjum og styður stjórnendur í að ná því besta út úr sínum rekstri. Markmið Alfa er að vera fyrsti valkostur stjórnenda, eigenda og annarra samstarfsaðila sem hafa metnað til að vaxa og bæta árangur fyrirtækja. Hjá starfsmönnum Alfa, og í baklandi framtakssjóðsins, er til staðar mikil reynsla af rekstri, framtaksfjárfestingum og umbreytingarverkefnum og fyrirtækið er um þessar mundir með til skoðunar fjárfestingar í nokkrum innlendum rekstrarfélögum.

Fyrsta fjárfesting framtakssjóðs Alfa átti sér stað í september síðastliðnum þegar fyrirtækin Borgarplast og Plastgerð Suðurnesja voru keypt í samstarfi við stjórnendur þeirra. Gert er ráð fyrir að þau verði sameinuð á næstu mánuðum.