© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

Iða Brá Benediktsdóttir hættir sem stjórnarmaður hjá HB Granda á nýársdag. Hún mun í eftir það taka við sem forstöðumaður einkabankaþjónustu Arion banka. Hanna Ásgeirsdóttir, varamaður í stjórn HB Granda, tekur sæti stjórnamanns í stað Iðu Brár.

Iða Brá settist í stjórn HB Granda í fyrra fyrir hönd Arion banka, sem átti þriðjungshlut í félaginu. Áður átti hlutinn Kjalar, félag Ólafs Ólafssonar.